*Hulda*

Í blóma lífsins:*

11.09.2007 16:31:26 / Hulda

Ný síða

jæja ég er komin með nýja síðu

http://hulduz.bloggar.is/


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 22:01:00 / Hulda

hætta eða???

Ég er að spá í að hætta með þesa síðu og vera bara með barnanet.is/gullmoli

Hvað finnst ykkur???


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 12:02:54 / Hulda

Prinsessa fædd!!!

Suðurferðinni cancelað því bumbukrílið ákvað að koma í heiminn aðfaranótt laugardagsins 25.ágúst og var það lítil gullfalleg dama:haha::haha::haha:

 Búin að setja myndir inn á barnanet;) http://www.barnanet.is/gullmoli

Þar sem foreldrarnir eru núna gjörsamlega að springa úr stolti og voða busy við að knúsa litla stelpuna sína verður ábyggilega ekki mikið bloggað hér á næstunni. En við munum að sjálfsögðu reyna að vera dugleg að bæta inn á síðuna hjá litlu dömunni til að leyfa fólki að fylgjast með:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 19:27:17 / Hulda

suður á morgun...!!!

getið lesið meira um það hér...http://www.barnanet.is/gullmoli

nenni ekki að skrifa þetta aftur


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 21:31:49 / Hulda

11 dagar...

Ég veit ég er ekki búinn að vera aktívasti bloggarinn upp á síðkastið. Held að aðalástæðan fyrir því sé sennilegast sú að ég er búin að vera frekar busy við að undirbúa komu gullmolans í heiminn:haha:...enda ekki nema 11 dagar í settan dag. Úff hvað þetta er búið að líða hratt!!!8| En já síðustu dagar hafa aðalega farið í að skipuleggja ýmislegt fyrir fæðinguna og svona. Svo er ég búin að vera að þvo barnaföt á fullu og baka smávegis...alltaf gott að eiga eitthvað í frysti ef það koma gestir;) Ég mun líklegast halda því áfram næstu daga líka.

Svo erum við Gísli einnig búin að vera að spá heilmikið í nafn á krílið og skírnina og svona...allt voða spennandi...eða það finnst okkur:haha: Okkur hlakkar allavega alveg rosalega til og erum eiginlega farin að bíða bara eftir að eitthvað fari að gerast híhí.

En já svona fyrir utan hreiðurgerðina þá er Gísli bara búinn að vera að vinna upp í sveit eins og venjulega að vinna, kemur heim á fimmtudögum og er hér fram á mánudagsmorgna. Á meðan eyði ég tímanum eins og ég sagði í að þvo þvott, baka og laga til...svo auðvitað dágóðum tíma í að hvíla mig, ekki veitir af með þessa bumbu út í loftið hehe. Svo þegar hann kemur inn á Akureyri reynum við að gera eitthvað skemmtilegt saman...kúra yfir mynd, fá okkur eitthvað gott að borða og brasa ýmislegt saman. Svo erum við búin að reyna að vera dugleg að hitta vinina. Danni og Jóna kíktu smá í heimsókn um þarsíðustu helgi. Sömu helgi skelltu Gísli og Egill sér saman í bíó...við Katrín horfðum saman á video á meðan og að sjálfsögðu spjölluðum heilan helling. Svo núna um helgina buðu við þeim í mat til okkar og fórum svo í bíó saman, rosa gaman:haha: Á föstudagskvöldið síðasta grilluðum við Snædís, Hildur og Eva Dís í bústað hérna rétt fyrir utan bæinn og skelltum okkur svo í pottinn á eftir. Svo þetta bara búið að vera voða næs:haha:

Mér finnst þetta sumar reyndar alveg búið að fljúga áfram...og mér finnst ég líka ekki heldur búin að gera helminginn af því sem ég ætlaði að gera í sumar. Við Gísli ætluðum að vera svo dugleg að fara eitthvað saman í sumar en það hefur ekki alveg gengið eftir. Enda bæði kannski búin að vera að vinna mikið, svo þurfti ég að hætta út af blóðveseninu...svo það hefur kannski sett smá strik í reikninginn. En þetta er að engu að síður búið að vera fínt sumar. Búin að vera mikið með fjölskyldunni, sem er æði. Hefði alveg viljað eyða meiri tíma með stelpunum þar sem það styttist nú óðum í að þær fari út. En við erum allar búnar að vera að vinna sitt á hvað og erfitt að finna tíma þar sem allir geta hist.

Mér finnst voða skrítið að hugsa til þess að ég sé ekki að fara í skóla í haust. Var einmitt að segja við Gísla um helgina að ef við værum enn í skóla væri hann bara að byrja aftur í skólanum núna í vikunni...því já skólarnir eru flestir að byrja núna....bróður mínum til mikillar ánægju, hann nennir sko ekki aftur í skólann (já og er by the way að fara í 3.bekk í grunnskóla hehe). Honum finnst voða notalegt að vera bara heima og dunda, algjört krútt. En já þetta verður voða skrítið haust....enginn MA, enginn T-bekkur, enginn heimalærdómur eða próf, allir að fara suður í skóla eða til útlanda að leika sér....svo auðvitað mestu viðbrigðin - lítið kríli að koma í heiminn...svo verður maður actually að fara að pæla hvað maður ætlar að verða þegar maður verður stór!!! því það þarf að fara að huga að háskólaumsóknum og búsetu fyrir þarnæsta vetur:$

En jæja nóg af pælingum og fréttum í bili. Býst ekki við að vera dugleg að blogga á þetta blogg á næstunni, en þið sem viljið getið fylgst með okkur bumbunni á http://www.barnanet.is/gullmoli


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 12:13:29 / Hulda

Lífið er yndislegt...!!!

Á þessu ferðalagi fylgjumst við að.

Við eigum, örlítinn vonarneista fyrir hvort annað.

Í ljósu mánaskini vel ég mér stund og segi

ég myndi klífa hæstu hæðir fyrir þig.

ég væri ekkert án þín, myrkrið hverfur því að... 

~

 

Lífið er yndislegt, sjáðu það er rétt að byrja hér

Lífið er yndislegt með þér. 

~

 

Blikandi stjörnur skína himninum á.

Hún svarar, ég trúi varla því augu mín sjá

og segir ég gef þér hjarta mitt þá skilyrðislaust

Ég veit að þú myndir klífa hæstu hæðir fyrir mig 

~

 

Lífið er yndislegt, sjáðu það er rétt að byrja hér

Lífið er yndislegt með þér

~

 

. ...Nóttin hún færist nær, hér við eigum að vera.

núna ekkert okkur stöðvað fær

undir stjörnusalnum inní herjólfsdalnum... 

~

 

Lífið er yndislegt, sjáðu það er rétt að byrja hér

Lífið er yndislegt með þér.


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 11:45:50 / Hulda

Versló!!!

jæja þá er þessi verslunarmannahelgi búin...hún var nú bara svona í rólegri kanntinum á þessu heimili...!!! Ég fór EKKERT á djammið um helgina8|...spurning hvort það sé dæmi um það að maður sé að verða gamall og latur eða hvað??? :$ Neinei...mér fannst bara ekki mikið spennandi í boði og svo var ég að vinna alla helgina og hafði einfaldlega ekki orku í meira.

Vikan er bara búin að fara í vinnu, smá sjúkrahúsvesen og að laga til í íbúðinni. Á fimmtudaginn fór ég ekkert að vinna því ég var gjörsamlega að drepast í hausnum eftir þetta blessaða lyf. Lá heima allan daginn og slappaði af. Gísli kom frekar sein heim um kvöldið því hann var í einhverri skoðunarferð í Kárahnjúkum. Þegar hann kom fórum við bara að kúra yfir sjónvarpinu og svo að sofa;)

Á föstudaginn vaknaði ég snemma til að fara í blóðprufu, hún kom bara rosa vel út. Svo vorum við bara eitthvað að brasa heima, laga til og svona. Skelltum okkur svo á Glerártorg í smá verslunarleiðangur...ætluðum að kaupa hyllu til að setja inn í herbergi en hún var búin:( Ég fór svo að vinna um hálf 6 í bíóinu og Gísli fór að vinna um 8 við gæslu á Hömrum. Ég var búin eitthvað um 11 leytið og ákvað að rölta þá inn í bæ þar sem ég var bíllaus og hafði ekkert far heim. Datt svona í hug að ég myndi kannski rekast á einhvern sem væri á bíl og gæti skutlað mér heim...en nei þetta pakk sem var þarna var ekki einu sinni nógu gamalt til að vera með bilpróf. Svo ég rölti bara um og beið þangað til Gísli var búinn að vinna, þá kom hann og sótti mig. Við fórum bara heim og horfðum á sjónvarpið í smá tíma og svo að sofa

Á laugardaginn sváfum við út og komum okkur á lappir seint og um síðar meir. Dunduðum aðeins heima við að laga meira til í íbúðinni. Þetta fer baraasta allt að koma hjá okkur. Eigum eftir að ná í skiptiborðið og þá getur mín farið að dunda sér við það að þvo barnaföt og setja í skúffu:haha: Svo röltum við aðeins um í bænum, en entumst ekki lengi því það var svo ógeðslegt veður. Ég fór svo að vinna hálf 4 og var að vinna til 11...reyndar með smá matartíma. Þá röltum við Gísli og Binni inn í bæ að kíkja aðeins á stemmninguna. Hún var svo sem ágæt en við nenntum ekki að vera þarna lengi svo við fórum bara heim að spjalla og horfa á einhverja mynd. Svo var bara farið að sofa

Á sunnudaginn gerðum við svo sem ekkert spes fram eftir degi. Gísli horfði á formúluna og svona. Svo fórum við í kaffi til mömmu og pabba. Ég fór að vinna háfl 4 en var bara að vinna til 6. Þá kom Gísli og sótti mig og við drifum okkur heim í sturtu og gerðum okkur reddí fyrir kvöldið. Fórum svo á Greifann með Díönu og Ásgeir...sem var bara rosa fínt:haha: Eftir greifann fórum við í afmæli til Höllu. Þar voru náttúrulega Halla og Kristján og Edda og Rik. Við sátum og spjölluðum og fífluðumst til að verða hálf 2, þá fórum við Gísli bara heima að sofa og þau á djammið niður í bæ.

Í gær vaknaði ég svo snemma til að fara í blóðprufu. Svo kom ég heim og vakti Gísla og við tókum aðeins til í íbúðinni. Fórum síðan í kakó og ristabrauð til ömmu og afa. Svo komu Díana og Ásgeir í heimsókn að líta á litlu holuna okkar;) Þegar þau voru farin pökkuðum við saman draslinu okkar og brunuðum upp í sveit. Reyndar með smá viðkomu í Dalsgerði því mamma, pabbi og strákarnir komu með í smá bíltúr. Við byjruðum á að fara í Neslönd þegar við komum og skoðuðum heimalingana, kálfana, hænurnar og fuglasafnið. Strákunum fannst þetta voða spennandi. Daníel spurði strax hvar sexhjólið væri því seinast þegar hann kom hingað fékk hann að fara á sexhjól með Gísla hehe....töffari8) Svo fórum við upp í búð...komum með skiptimynt frá Akureyri fyrir búðina því það var allt klink í sveitinni búið hehe. Við fengum okkur ís í leiðinni og fórum svo bara heim til tengdó að spjalla aðeins og strákarnir að leika sér. Svo fóru þau bara heim á Akureyri og Sigga og Stefán komu heim. Við fórum svo öll í búðina að versla í matinn...grilluðum hamborgara, steiktum okkur franskar og borðuðum ís í eftirrétt:haha: Við Gísli og Sigga fórum svo í gegnum nokkra kassa hérna og skoðuðum barnafötin af Gísla og systkinum hans, fengum nokkrar samfellur og galla að láni....ferlega krúttlegt:haha: Svo steinrotuðumst við hérna upp í rúmi um 9 leytið. Vöknuðum svo þega Svanhildur kom heim úr vinnunni um hálf 11. Ákváðum þá að fara að hátta og búa um okkur...gátum náttúrulega ekkert sofnað aftur svo við fórum bara aðeins að skoða á netinu og sofnuðum svo.

Gísli fór svo í vinnuna í morgun og er að vinna til hálf 7. Ég vaknaði við símann umm 11 leytið. Er bara búin að liggja í leti síðan. Er að hugsa um að fara að koma mér á fætur og kannski eitthvað út í góða veðrið. Erum svo að vonast til að geta grillað eða eitthvað með Antoni og Elvu i kvöld ef þau hafa tíma. Svo fer ég heim á morgun...vona að ég finni eitthvað far, annars verður Gísli bara að keyra mig hehe. Ég er svo að fara á aukavaktir í bíóinu um helgina...sé eiginlega pínu eftir því að hafa tekið þetta að mér því ég fer að verða ansi þreytt, orkan fer öll sömul í litla krílið. Svo er bara nóg sem á eftir að gera og það hefði verið fínt að nýta helgina í það. En svo er bara ein vinnuvika eftir og þá er ég hætt í bili, ætla bara að slappa vel af og svona áður en krílið kemur.

Annars hef ég ekkert merkilegt að segja ykkur...svo bara adios!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.08.2007 11:13:08 / Hulda

Hvað er að???

Það fyrsta sem maður heyrir...og eiginlega það eina sem maður heyrir í fjölmiðlum þessa dagana er hvað hátíðin á Akureyri sökki vegna þess að ungmennum á aldrinum 18-23 ára hafi verið bannaður aðgangur að tjaldstæðunum.Svo er verið að tala um hvort þetta hreinlega megi að banna þessum ungmennum aðgang að tjaldstæðunum...mér finnst það bara bráðnauðsynlegt til að koma í veg fyrir að allt fari í rugl. Svo er líka smá munur á því hvort rúmlega tvítugt par kemur á tjaldstæðið með barn í aftursætinu eða bjórkassa.  Fólk...þetta heitir ekki lengur Halló Akureyri eins og hérna í den....sem var ein stræsta unglingadrykkjuhátið á landinu. Þessi hátíð hér á Akureyri um verslunarmannahelgina hefur tekið miklum breytingum síðustu ár og verið að þróast í aðra átt...og jú náð hámarki núna þar sem unglingum er meinaður aðgangur að tjaldstæðunum...í dag heitir þessi hátíð FJÖLSKYLDUHÁTIÍÐIN ein með öllu!!!! Þetta er hátíð fyrir fjölskyldufólk....ekki fulla unglinga sem hafa ekki einu sinni vit á því hvað þeir eru að gera og upp úr skemmtuninninni hefst ekkert annað en vesen. Undanfarin ár hafa alltaf verið mestu lætin á Akureyri, venjulega allt farið úr böndunum og bærinn er vægast sagt ógeðslegur eftir þessa helgi. Akureyri hefur aldrei fengið neitt annað en neikvæða umfjöllun um versló og svo núna þegar á að reyna að breyta ástandinu og ímyndinni þá er fólk bara með yfirdrull og leiðindi. Með því að leyfa 18 ára unglingum að vera hér erum við að skapa meiri hættu á að sífellti yngri krakkar reyni að smygla sér inn...sem er ekki gott. Hver vill í alvöru stuðla að því að krakkar...sem eru by the way undir lögaldri...séu að drekka sig haugafull, drepast einhverstaðar á víðavangi, eða jafnvel sukka í einhverju allt öðru sem oft er á boðstólnum á svona hátíðinum. Hvað er að spyr ég nú bara??? Viljiði í alvöru hafa þetta eins og þetta var??? Fyrst þið eruð svona svakalega ósátt við þetta fyrir sunnan afhverju haldiði ekki bara ykkar eigin útihátíð um versló fyrir þennan svokallaða "aðalmarkaðshóp útihátíðanna"??? nei....þið eruð ekki einu sinni með útihátíð og hafið ekki verið með í fjölda ára. Og hvers vegna er það? jú vegna þess að borgarbúar eru dauðfegnir að vera lausir við drykkjulætin, vesenið og sukkið sem fylgir þessari hátíð og vilja ekki fyrir nokkra muni hafa þetta í sínum bæ. Well guess what??? við viljum þetta ekki heldur...það er allt í lagi að taka smá tillit til þeirra sem búa fyrir í bænum sko!!!:evil::evil::evil:

p.s er ekki að biðja um einhverjar rökræður eða skapa rifrildi....einungis að segja mitt álit;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 16:19:26 / Hulda

mánudagur...

jæja helgin er búin að vera voða fín. Gísli kom snemma heim á fimmtudaginn og ætlaði að koma mér á óvart...en ég var bara ekki heima heldur í dalsgerði hjá mömmu að ganga frá skóladóti. En það var samt sem áður rosa gaman að fá hann svona snemma heim. Ég hélt aðeins áfram að fara í gegnum glósur og bækur og Gísli horfði á video með Tómasi á meðan. Svo fórum við á sprettinn og pöntuðum okkur pizzu og brauðstangir og leigðum okkur mynd...höfðum það svo bara kósý heima um kvöldið;)

Á föstudaginn vorum við aðalega bara að brasa og dúllast. Fórum niður á bæjarskrifstofu og létum skrá okkur í sambúð og breyttum lögheimilinu okkar:D. Svo fórum við í smá búðarleiðangur og svona...versluðum aðeins í Byko. Komum svo heim og gengum frá draslinu sem við keyptum, settum meðal annars svona hengi fyrir skotið hjá okkur...sem við notum sem litla geymslu...svo leiðinlegt að sjá alltaf í allt þetta drasl þarna hehe. Um kvöldið elduðum við okkur svo fahjitas. Eftir mat skelltum við okkur í heimsókn til Ríu og Egils...það var bara ótrúlega gaman:haha:. Spjölluðum alveg heillengi um allt milli himins og jarðar og skemmtum okkur bara konunglega:haha:. Tókum svo smá rúnt með þeim og fengum okkur ís í brynju og kjöftuðum meira. Svo var bara farið heim að kúra.

Á laugardaginn sváfum við fram að hádegi held ég og komum okkur svo á fætur. Drifum okkur í búðina og keyptum okkur eitthvað gott á grillið. Brunuðum svo í Ásbyrgi þar sem stelpurnar voru í útilegu. Grilluðum með þeim fífluðumst fram eftir degi og fram á kvöld:D. Fórum svo heim um 9 leytið. Þá var drifið sig beint í party til Kollu frænku:haha:, það var rosa fínt...aðalega bara fjölskyldan sem var þarna...mamma og pabbi, Gummi og Nína og Maggi. Rosa gaman bara...spjallað og étið nammi og snakk...sumir drukku bjór...við hin vorum bara í gosinu. Mamma og pabbi fóru svo heim á undan okkur hinum, við skutluðum liðinu niður í bæ á kaffi Ak og fórum svo bara heim að sofa.

Á sunnudaginn vöknuðum við frekar snemma til að fara upp á sjúkrahús í blóðprufu og að hitta lækninn minn. Eftir það fórum við í bakaríið við brúna og keyptum rúnstykki og bananastykki og fórum með til mömmu og pabba og borðuðum;). Við Gísli fórum svo heim að brasa í íbúðinni. Ákváðum að það væri ýmislegt sem þyrfti að breyta áður en krílið kemur...erum nefnilega búin að ákveða að vera bara áfram hérna í Áshlíðinni í vetur. Amma og afi ætla að láta breyta hérna niðri...sem sagt gera almennilegt baðherbergi handa okkur....svo við getum verið hér áfram...sem er náttúrulega bara frábært:haha::haha::haha: yndislegt að eiga svona góða fjölskyldu;). Okkur líður líka bara rosa vel hérna og nennum varla að vera að standa í því að flytja fyrir eitt ár. En já við þurfum sem sagt að endurraða aðeins í íbúðina til að koma barnadótinu fyrir. En pabbi kom og hjálpaði okkur, þurftum nefnilega að fara með smá dót í geymslu og svona. Gísli dúllaði sér svo við að færa húsgögn til og setja upp hyllur og svona....meðan ég var að vinna í næstum allan gærdag og gærkvöld - brjálað að gera út af simpsons8|

Gísli fór svo upp í sveit í morgun. Ég skellti mér í sund með mömmu og við skruppum svo í kaffi til ömmu. Svo er ég bara búin að vera hér heima að dunda mér við að laga til...endurraða hérna fyrst það að búið að breyta svona fínt í íbúðinni....get dúllað mér við að raða upp á nýtt næstu daga. Svo var ég líka aðeins að dúlla mér við barnanet-síðuna...setja inn myndir og blogga. Þarf síðan að fara upp á sjúkrahús á morgun...lögð inn í einn dag...getið lesið meira um það inn á barnanet...svo endilega kíkið á síðuna;)

http://www.barnanet.is/gullmoli


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 20:25:25 / Hulda

...

Ég var að ræða við góða vinkonu mína um daginn um...ja hvað á ég að segja...aðalega fólk bara yfir höfuð...og hvernig það er mismunandi. Við ræddum það hvað maður getur veirð mis opið, kurteis, tillitsamur og svo framvegis og svo framvegis. Við ræddum aðalega það hvernig fólk er mishæft til að tjá sig...sumir geta opnað sig strax og finnst ekkert mál að tjá tilfinngar sínar, aðrir eru mjög lokaðir og jafnvel harðlæstir og hleypa engu út....þeir setja eingungis upp grímu þegar eitthvað bjátar á og láta eins og ekkert hafi í skorist. En það er mjög óhollt því það er bókað mál að það er ekki hægt að byrgja allar tilfinningar inni endalaust....einvherntíman hlýtur maður að brotna niður og það gerir bara illt verra. Ekki það að ég sé voða opin á tilfinniingar mínar...síður en svo. En þessi góða vinkona mín benti mér á gott ljóð á netinu sem átti rosa vel við þetta sem við vorum að ræða og ég bara verð að skella því hérna inn á og leyfa ykkur að lesa....

Brosið.


Er það ekta í dag?
Eða er það bara gervi?

Hvað leynist á bak við það bros sem aðrir sjá í dag?
Líklega ekki jafn glaðlegt andlit og ég sé í speglinum.
Líklega eitthvað með meiri sársauka og vanlíðan.

En hvers vegna er þessi gríma?
Af hverju fel ég það hvernig mér líður?

Hræðsla við að aðrir taki mér ekki með öll þau vandamál og tilfinningaflækjur sem á mér eru.
Taki mér ekki eins og ég er.

En af hverju ekki? Því er ég hrædd?
Þetta er bara ég og svona líður mér.

En þrátt fyrir skýrar hugsanir ræð ég ekki við grímuna og fel persónu mína á bak við þykkt lag af brosi.

Það þarf enginn að vita hvernig mér líður. Enginn þarf að spyrja neins.
Enginn þarf að vita að mér líður illa.
Allir geta haldið að ég sé ánægð og brosi því dagurinn í dag ætti að vera gleðidagur.

Hver dagur hefur pínu gleði.
Hver dagur hefur sinn skammt af vanlíðan.
Hver dagur hefur sitt falska bros og sínar persónugrímur.

Í dag vil ég að persónugríman mín verði tekin niður.

Það er bara svo erfitt.... svo afskaplega erfitt. Svo erfitt að það er varla hægt án þess að brotna niður. 

Karitas

Mundu bara...ef þú smile-ar framan í heiminn....mun heimurinn smile-a við þér:haha::haha::haha:

Be true to yourself!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 21:19:34 / Hulda

Hver vill leika???

jæja kominn tími á nýtt blogg kannski...

Ég hef svo sem ekki mikið gert í síðan ég bloggaði síðast...allavega ekki fram að helgi. Var aðalega að dúllast bara með mömmu og strákunum og svona. Fórum nokkrum sinnum í sund og svo í kjarna að leika okkur og bara njóta góða veðursins. Svo var þetta mín vinnuvika svo ég var að vinna frá 5-23 flest kvöld, með matarhléi að vísu. Gísli kom svo heim á fimmtudagskvöldið...ohh hvað það var gott að fá hann heim:haha:

Á föstudaginn vöknuðum við snemma og ég fór í blóðprufu. Hún kom vel út í þetta skiptið svo ég mátti minnka lyfjaksammtinn smá. Sem er gott...því þessi lyf fara ekkert voða vel í mig. Svo fórum við í Bakaríið við brúna og fengum okkur rúnstykki í morgunmat. Í hádeginum fórum við á Greifann að hitta Hönnu og Dísu í hádegismat. Eftir matinn fengum við okkur göngutúr inn í bæ, löbbuðum í Brynju og fengum okkur ís, löbbuðum aftur inn í bæ á meðan við kláruðum ísinn og nutum veðurblíðunnar. Svo tókum við strætó upp í dalsgerði, en það var enginn heima þar svo við röltum bara heim aftur. Um kvöldið var okkur svo boðið í mat til mömmu og pabba og ég fór svo að vinna hálf 8 og Gísli skellti sér í bíó á meðan. Eftir vinnu fórum við bara heim, ég fékk smá nudd á meðan við horfðum á imbann og svo bara að kúra:haha:

Á laugardaginn sváfum við bara út, fengum okkur morgunmat í rólegheitunum og komum okkur svo á fætur um hádegi. Skruppum í Hagkaup að fá okkur laugardagsnammi. Svo eftir hádegið fórum við með mömmu, pabba, strákunum og afa í smá rúnt hérna út fjörðinn og fórum á miðaldarmarkaðinn á Gásum. Ekkert smá flott, fullt af mynjagripum til sölu, fengum að sjá menn skylmast og skotið úr fallbyssu. Svo eftir það fórum við öll, nema afi, í sund á Þelamörk. Eftir sundið fórum við Gísli í sjoppu og fengum okkur að borða. Ég fór svo að vinna og hann heim. En þar sem það var ekkert svo mikið að gera fékk ég að fara snemma heim. Við Gísli höfðum það bara kósý og kveiktum á kertum, fengum okkur ís og horfðum á David Attenbourough:haha:

Í gær drifum við okkur í sund þegar við vöknuðum og svo skelltum við okkur í bíó ásamt Snædísi á Harry Potter. Eftir það var mín bara alveg búin svo ég kúrði eila bara alveg fram að vinnu. Fór svo að vinna og heim að sofa eftir vinnu. Eða reyndi það, leið ekkert voða vel svo ég sofnaði eila ekki fyrr en i morgun stuttu áður en Gísli fór á fætur til að bruna upp í sveit í vinnuna:(

Svo Gísli er farinn í sveitina núna. Ég vaknaði snemma til að fara í blóðprufu, flögurnar eru svona að hækka hægt og rólega núna. Ekki nógu mikið til að minnka lyfjaskammtinn meira í bili, því miður....þoli ekki þessi lyf:evil: En fer aftur í tékk á fimmtudaginn, vonandi breytist þetta eitthvað þá. Spjallaði svo smá við lækninn og hann vill sem sagt að ég hætti að vinna á leikskólanum...og fari svona að huga að því að hætta í bíóinu...en má nú halda pínu lengur áfram þar. Fór því með vottorð til yfirmannsins á leikskólanum. Hún er algjört yndi og tók þessu rosa vel og sýndi mér fullan skylning....en vá hvað mér leið illa yfir þessu, búin að vera á algjörum bömmer sko:cry: Svo skrapp ég í sund með mömmu í hádeginu og fór síðan heim að hvíla mig...eila alveg búin á því. Mamma og pabbi buðu mér svo í mat áðan og núna sit ég bara á horfi á imbann og hef það kósý.

En annars þá er ég sem sagt hætt að vinna á daginn...bara bíóið aðra hverja viku...í bili allavega...spurning hvað það verður lengi. Svo ég þarf sem sagt að finna mér eitthvað að gera næstu 5 vikurnar allavega. Er svona komin með nokkrar hugmyndir þannig ég hef allavega eitthvað að gera. En ef einhver vill leika við mig næstu daga...er það sko meira en vel þegið;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 18:50:41 / Hulda

borgarferð

jæja ég skellti mér í borgina um helgina...eða öllu heldur á miðvikudagskveldið...fékk far með Ölfu og Örnu Guðbjörgu ásamt ömmu og Svavari. Við Arna og Svavar vorum rosa skemmtilegur félagsskapur á leiðinni suður...sátum öll aftur í með sitthvorn ipodinn í eyrunum og nánast sváfum mest alla leiðina...á meðan spjölluðu amma og Alfa hehe. Vorum komin suður um 11 leytið á miðvikudagskveldið og fórum þá beint í Ásbrautina til Gumma og Nínu...þar var meiri hlutinn af familíunni að plana brúðkaupið. Svo fór ég bara með mömmu og pabba og strákunum í íbúðina sem þau voru með og við fórum að sofa.

Á fimmtudaginn fór ég bara í búðarráp...skellti mér bæði í kringluna og smáralindina. Ekkert voða mikill afrakstur úr þessari verslunarferð minni fannst mér...hefði getað gert mun betur og hef eflaust oftast gert. En það er svona þegar maður er búinn að ákveða að ætla að versla mikið og á loksins pening til þess þá bara finnur maður ekki neitt. Svo ég kom bara með meirihutann af útskriftarpeningnum til baka:S. En samt sem áður keypti ég mér einn kjól, einn síðan bol, leggings, nærbuxur og veski. Svo átti ég innlegsnótu í Tékk kristal og fékk mér rosa fallega mynd fyrir hana. Svo stóðs ég ekki mátið og verslaði smá á krílið líka;) Þar sem ég gafst bara upp á að finna eitthvað að jússuna mig...þá ákvað ég að skoða barnaföt. Verð nú bara að segja að það var eila bara mun skemmtilegra...enda þó nokkuð þreytandi að máta föt með huges bumbu framan á sér hehe. En ég keypti nokkrar samfellur og krílið og svo lítinn bangsimon galla...ferlega krúttlegt:haha: Um kvöldið fór ég svo með frændsystkinin mín í bíó...Örnu, Svavar og Axel...á Harry Potter. Hún var bara þónokkuð góð. Svo bara heim í íbúð til mömmu og pabba að bíða eftir Gísla sem var á leiðinni í borgina. Svo þegar hann kom fórum við bara upp í rúm að kúra.

Á föstudaginn reif ég Gísla á fætur um 11 og við skelltum okkur í Ikea að hitta Díönu. Gerðum ágætis verslunarleiðangur úr því í leiðinni hehe;) Ætluðum að kaupa okkur eldhúsborð, en það var búið svo það er bara í pöntun...fáum það þegar það kemur til landsins, svo keyptum við 4 kolla við borðið og 2 hyllur í stofuna okkar, ætluðum að kaupa eina í viðbót inn í herbergi en hún var ekki til. Eftir Ikea ferðina fórum við svo að hjálpa til fyrir brúðkaupið. Við fórum sem sagt í salinn þar sem veislan átti að vera, ásamt fullt af fólki...og gerðum hann reddí. Röðuðum öllu upp, dekkuðum borðin og bara alles. Svo um kvöldmatarleytið var þetta svona að verða klárt og þá fórum við í mat til Fríðu og co. Eftir matinn skruppum við svo aðeins til Gumma og Nínu til að fara yfir það sem átti eftir að gera með þeim og hvernig laugardagurinn yrði. Þarna var ég sko alveg komin á þá skoðun að ég ætlaði sko aldrei að gifta mig...var alveg komin með nóg af þessu stressi í fólkinu hehehe...en sú skoðun breyttist nú fljótt á laugardeginum þegar athöfnin hófst;) Svo fórum við í íbúðina til Kollu, en þar ætluðum við að vera þar sem eftir var af helginni.

Á laugardaginn vöknuðum við Gísli extra snemma, fórum í sturtu og gerðum okkur reddí fyrir brúðkaupið. Svo þurftum við nefnilega að brasa smá....Gísli fór að þrífa brúðarbílinn og ég að kaupa sápukúlur. Svo skreyttum við bílinn. Svo skruppum við aðeins og fengum okkur að borða. Gísli þurfti svo að vera reddí tímanlega til að sækja föður brúðarinnar og brúðina sjálfa...hann var nefnilega bílstjóri. Ég hjálpaði Nínu að taka sig til og rölti svo upp í kirkju. Athöfnin fór fram í Kópavogskirkju...Sigurður Axel var hringaberi...ferlega flottur í jakkafötum með pípuhatt, Elsa Björg var að sjálfsögðu viðstödd....hálfgerð brúðarmeyja en sat samt bara á fremsta bekk með parnapíunum og ömmum sínum...rosa sæt:haha: Svo söng Páll Óskar og Monika spilaði á hörpuna...þetta var alveg æðislegt..fékk alveg tár í augunu:haha: Svo voru þau svo flott...Gummi og Nína...stróglæsileg:haha: Eftir athöfnina fóru brúðhjónin svo í myndatöku en við hin fundum okkur eitthvað að gera til að drepa tímann þangað til veislan var. Ég mætti örlítið fyrr í salinn til að græja sápukúlurnar...koma þeim fyrir og svona. Svo fóru gestirnir að streyma inn um hálf 6...og brúðhjónin komu um 6...og var tekið á móti þeim fyrir utan með sápukúlum og skálað í freyðivín. Veislan var síðan rosa skemmtileg....góður matur, góðar kökur og frábær skemmtiatriðið inn á milli...hlógum okkur allavega máttlaus yfir sumum þeirra. En þetta var bara ótrúlega skemmtileg veisla í alla staði. Við fórum síðan með þeim síðustu heim. Löguðum aðeins til í salnum, fórum með gjafirnar út í bíl og blómin og allt það sem þurfti að taka aftur heim. Svo keyrði Gísli brúðhjónin upp á hótel og svo fórum við heim að sofa.

Sváfum fram að hádegi á sunnudag. Tókum okkur þá alveg til og komum íbúðinni í gott stand aftur. Svo fórum við í Ásbrautina en þá voru brúðhjónin bara ekkert komin heim. Svo við tókum Örnu Guðbjörgu með okkur á McDonalds og fengum okkur að borða. Svo aftur í Ásbrautina og náðum í vögguna fyrir litla krílið okkar upp á loft hjá Gumma og Nínu og svo var bara lagt af stað norður. Þegar við komum svo á Akureyrina fór ég beint að vinna því greyið Sunna fór veik heim. Þegar ég kom svo heim úr vinnunni var Gísli búinn að setja vögguna saman fyrir krílið og kollana sem við keyptum í Ikea. Svo horfðum við bara smá á imbann og fórum svo að kúra.

Gísi fór svo eldsnemma upp í sveit í morgun að vinna...ég er í fríi alla þessa viku á leikskólanum...svo það er bara bíóið. Byrjaði daginn á mæðraskoðun og blóðprufu...segi meira frá því inn á barnanet síðuna við tækifæri. Skellti mér svo í sund og á smá þvæling...smá búðarráð í góða verðinu;)

Ætli þetta sé ekki gott í bili...bæjó


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 11:31:52 / Hulda

Sumarfrí!!!

Jæja þá er ég loksins komin í smá frí...mmm hvað það verður næs;)

Helgin var alveg æðisleg. Gísli kom á fimmtudagskvöldið eins og venjulega, ég var að vinna það kvöld og fór svo bara heim til hans að kúra. Á föstudeginum var ég að vinna og Gísli bara eitthvað að dúlla sér þangað til ég kom heim. Þá fórum við aðeins niður í bæ að rölta og svo bauð ég kallinum mínum út að borða á Greifann:haha: Svo var það bara vinna aftur um kvöldið og heim að kúra.

Á laugardaginn þurfti ég ekki að mæta í vinnuna fyrr en hálf 8 um kvöldið svo við sváfum alveg fram að hádegi. Komum okkur þá á lappir og gengum frá umsókninni um fæðingarstyrkinn. Eftir það hringdum við í mæður okkar til að athuga hvað væri til á þeim heimilum sem væri nothæft fyrir litla krílið okkar. Svo bjuggum við okkur til smá lista yfir það hvað væri nauðsynlegt að hafa reddí áður en krílið kemur. Svo ég ætla í fríinu mínu að fara heim til mömmu og skoða barnadótið og fötin þar og taka það sem mig langar að nota. Vonandi get ég svo farið fljótlega upp í sveit og farið í gegnum fötin og dótið þar með tengdó. Uff þetta er ekkert smá spennandi:haha: Ég varð eila ennþá meira spennt eftir allt þetta tal við Gísla, mömmu og tengdamömmu híhí:haha: Enda ekki nema rétt rúmar 7 vikur eftir svo það er ekki nema von;) Svo var okkur boðið í kaffi á efri hæðina ásamt mömmu og pabba og strákunum. Eldhúsið breyttist fljótlega í hárgreiðslustofu....ég sem sagt snoðaði litla bróður minn, Tómas....snyrti aðeins hárið á hinum litla bró, Daníel, því hann vildi ekki láta snoða sig.....og svo snoðaði ég Gísla líka. Eða sko þeir eru alveg báðir með smá brodda...ekkert alveg krúnurakaðir. En þeir voru allir þrír alveg svaka fínir og sætir á eftir hehe:D Svo var grill um kvöldið hjá ömmu í valló svo við skelltum okkur þangað í mat. Svo fór ég auðvitað að vinna hálf 8. Eftir vinnu brunaði ég síðan heim, skipti um föt og frískaði aðeins upp á lookið. Fór síðan heim til Evu Dísar þar sem stelpurnar voru í góðum gír....og við fórum svo í sjallann á Stuðmenn. Þetta var alveg rosa skemmtilegt kvöld:haha::haha::haha:

Á sunnudaginn svaf ég til 10-11. Svo bara gerðum við eila ekki neitt þangað til ég fór að vinna um hálf 2. Ég var að vinna til rúmlega 6...en þá fékk ég að fara í mat...svo aftur að vinna hálf 8 og að vinna til hálf 11 en þá fékk ég að fara heim. Við Gísli fórum þá í brynju og fengum okkur ís, fórum síðan heim og kúrðum yfir mynd og svo að sofa.

Gísli brunaði síðan upp í sveit í morgun að vinna. Ég er komin í vikurfrí..svo ég ætla bara að njóta þess að slappa af og dúlla mér:haha: Er aðeins byrjuð að þrífa íbúðina, ætla svo að skella mér í sund með mömmu og strákunum. Svo er aldrei að vita nema ég geri eitthvað skemmtilegt með þeim. Eða kíki smá í bæinn. Svo í kvöld ætla ég að fara með bræður mína í bíó á shrek 3. Annað kvöld er mér boðið í mat til Snædísar. Svo ef heilsan leyfir er stefnan á að skella sér suður á miðvikudaginn, Gísli kemur ekki fyrr en á fimmtudag eftir vinnu.

Annars hef ég svo sem ekki mikið að segja nema það að íbúðarmálin ganga ekkert voða vel. Erum búnar að fá nokkur símtöl varðandi okkar auglsýsingu og svo erum við búin að hringja út af nokkrum auglýsingum sem við sáum. Ekkert gengið enn...annað hvort fólk búið að leigja íbúðirnar, þær henta engan vegin okkur eða eru alltof alltof dýrar:( Er voða pirruð yfir þessu...finnst eins og þetta bara eigi ekki að ganga. Fyrst lendum við í því að við vorum búin að finna okkur íbúð...svo bara ákveður konan að leigja einhverjum öðrum. Svo sjáum eina sem okkur lýst rosa vel á...á mjög góðu verði og mikið innifalið...en nei þá vill kallinn langtímaleigjendur. Svo er hringt í okkur og okkur boðin íbúð...en neibb...hann hringir aftur og segist ekki þora að henda út hinum leigjandanum...sem by the way hefur ekki borgað leiguna í 4 mánuði. Svo hringjum við og ætlum að skoða eina íbúð og við komum okkur saman um tíma og alles...við mætum á staðinn og það er bara enginn heima og hann svara ekki í símann og ekki neitt...svo loksin þegar við náum sambandi er hann búinn að leigja íbúðina. Svo í gær förum við og skoðum eina íbúð...og leyst svona svakalega vel á hana....alveg ótrúlega falleg íbúð sko...ég varð bara alveg sjúk...nei alltof alltof alltof dýr fyrir okkur. :evil::evil::evil: Vá ég er orðin svo þreytt á þessu. Vildi bara að íbúðin sem við erum í væri aðeins stærri og með bað eða sturtuaðstöðu hérna niðri...þá myndum við sko bara vera hérna áfram...því okkur líður svo vel hérna.

En jæja ætla að fara að gera eitthvað af viti...!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 00:19:57 / Hulda

sól sól skín á mig...

jæja nú er júlí kominn....sem þýðir að þaðeru ekki nema 2 mánuðir í litla krílið, vá hvað tíminn líður hratt. Mér finnst eins og það hafi bara verið í gær sem ég pissaði á eitthvað prik og fékk út bláan plús hehehe;) en það eru víst 7 mánuðir síðan!!! Við Gísli ætlum að eyða helginni í að stússast aðeins...reyna að undirbúa komu gullmolans. Ætlum að ganga alveg frá umsókninni um fæðingarstyrkinn, reddum flest öllum vottorðum í vikunni og svona...vona að þetta verði klappað og klárt á mánudaginn svo við getum sent þetta. Svo ætlum við að fara yfir hvað þarf að hafa fyrir eitt svona lítið kríli....og meðal annars gá hvað við getum fengið lánað og hvað þarf að kaupa. Svo þetta verður bara ágætis helgi...ég hlakka allavega voða til hehe. Reyndar verð ég að vinna eins og mófó...en það er bara að skipuleggja tímann vel;)

En já síðustu dagar hafa bara farið í vinnu og aftur vinnu....9-15 á leikskólanum...voða rólegt þessa vikuna þar sem það eru flest allir drengirnir komnir í sumarfrí svo þetta er bara voða easy. Létt í eldhúsinu líka þar sem það eru bara yfir höfuð fáir krakkar á öllum kjörnum. Vinnuvika í bíóinu þessa vikuna...og það er sko alveg nóg að gera þar...svo mér leiðist allavega ekkert. Er að vinna þar frá svona 5 eða hálf 6 til 12...með reyndar matarhlé...þessa vikuna...byrja svo hálf 2 um helgina. Þannig að það má alveg búast við því að mín verði alveg búin eftir vikuna. En það er allt í lagi...þetta þýðir ekkert nema peningur og aftur peningur. Svo er ég líka í SUMARFRÍI í næstu viku....já ég man varla hvernig það er að vera í fríi...en leikskólinn er sem sagt lokaður í næstu og þarnæstu viku...svo það er engin vinna þar. Svo er náttúrulega frívika hjá mér í bíóinu í næstu viku...svo ég fæ alveg heila viku í FRÍ:haha::haha::haha: Hef ekki átt svoleiðis bara síðan ég var 12 ára eða eitthvað...búin að vera að vinna eins og mófó hvert einasta sumar síðan. En ég hef reyndar ekki hugmynd um hvað ég á að gera af mér þessa viku...reyndar förum við suður á fimmtudagskvöldið í næstu viku...brúðkaup í borginni 14.júlí...svo við æltum auðvitað í það og svo smá verslunarleiðangur...þar sem þetta er sennilega eina helgin sem við komumst suður í sumar...já og bara á næstunni hehe. En já annars er ég bara að hugsa um að njóta þess að vera í fríi og dúlla mér...vona að það verði gott veður þá er aldrei að vita nema ég skelli mér með múttu í sund...eða við dúllum okkur eitthvað saman með strákana. Þetta verður allavega bara gaman:haha:

Eftir þessa lokun á ég svo bara eftir að vinna ca 3 vikur á leikskólanum...og ætla að vera eins lengi í bíóinu og ég treysti mér til. Svo tekur bara við 6 mánuðir heima með lítið kríli:haha: Erum á fullu að leita okkur að íbúð núna...erum búin að auglýsa í dagskránni og hringja og spurjast út í nokkrar auglýsingar sem við sáum. Ekkert hefur gengið ennþá...en við fengum eitt símtal í kvöld...sjáum til á morgun hvað verður úr þvi. Vona bara að þetta fari að ganga...finnst voða óþægilegt að hafa þetta svona í lausu lofti. En ef þið vitið um litla 2-3 herbergja íbúð á góðum stað á akureyri til leigu í ca 1 ár...þá megiði endilega láta mig vita!!!

Annars held ég að ég hafi bara ekkert meira í bili að segja ykkur. Er enn með höfuðverk yfir þessu með myndasíðu...veit ekkert hvað ég á að gera eða vil gera...úff!!! Held reyndar að stærsta vandamálið sé að ég nenni einfaldlega ekki að búa til nýja síðu:$ En sjáum til hvað gerist í fríinu heheh;)

En ég segi bara au revior...og hafið það gott:haha:


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14